3 fyrir 2
Markmiðarviðtal
Kauptu TVENNA Let’s Talk About… fyrirlestra, fáðu þann ÞRIÐJA frítt! 3 fyrir 2
⭐ 25.nóvember - Let´s Talk About...CONFIDENCE
⭐ 18.desember - Let´s Talk About...NOTION
⭐ 19.janúar - Let´s Talk About... GOALS
⭐ 10.febrúar - Let´s Talk About... HABITS
⭐ 11.mars - Let´s Talk About...TRAVEL
⭐ 15.apríl - Let´s Talk About... CAREER & DREAM
⭐ 6.maí - Let´s Talk About... MONEY
Pickup currently not available
Við vinnum saman að þínum markmiðum
Markmiðaviðtal er tími þar sem þú og ég setjumst saman og tökum utan um það sem þú vilt ná fram, á pressu eða flækjustiga. Þetta er rými þar sem þú færð að koma með draumana þína, hugmyndir, óöryggi, spurningar og við vinnum saman að því að ná þínum markmiðum.
Við köfum dýpra í að sjá stóru myndina, finna hvað skiptir þig í alvörunni máli og byggja upp markmið sem passa lífinu þínu en ekki einhverjum checklistum frá öðrum.
Við skoðum líka hvað hefur staðið í vegi fyrir þér og hvernig þú getur þorað aðeins meira, tekið stærri skref og staðið betur með sjálfri þér.
Þetta er fyrir þig ef þú:
• vilt koma hugmyndunum úr hausnum og niður í plan
• vilt hætta að overthinka og byrja að framkvæma
• þarft smá pepp og push til að komast af stað
• vilt að einhver taki þetta með þér, hlusti og hjálpi þér að sjá hlutina skýrar
Þú færð:
• skýrt, framkvæmanlegt plan fyrir næstu vikur
• faglega leiðsögn og stöðugan stuðning frá mér
• markmið sem eru raunhæf, persónuleg og byggð upp þannig að þú náir þeim
• aukinn fókus, drifkraft til að halda áfram
Markmiðaviðtal er 60 mínútur og fer fram online eða í eigin persónu eftir því sem hentar þér.